Skúli Páls

Sub specie temporalis

27.01.2012 20:33

Afmæliskveðja

Þegar ég tók til á borðinu mínu fann ég miða með þessari limru sem mér fannst eiga skilið að vera haldið til haga. Ég gerði hana handa kórfélaga þegar hann átti afmæli. Til skýringar má kannski geta þess að maðurinn er úr Vestmannaeyjum, hann er alltaf í góðu skapi og svo er hann (eins og flestir söngvarar í karlakórum) giftur afburða fallegri og skemmtilegri konu.

Það eru aldeilis ágætar eyjar
þar sem upp alast söngvísir peyjar;
   heiminn þeir bæta
   með brosi og kæta
og svo fylgja þeim fríðustu meyjar.

Vafraðu um

Tenglar