|
Skúli Páls Sub specie temporalis |
|
22.01.2012 16:27Santiago SierraÞað var orðið frekar langt síðan við sáum listsýningu svo að örugglega höfum við misst af einhverju merkilegu, en í dag drifum við okkur í Hafnarhúsið til að skoða verk Spánverjans Santiago Sierra. Ég hafði aldrei séð neitt eftir hann en hafði þó heyrt listafólkið í kringum mig tala um hann. Fyrst löbbuðum við þó á Austurvöll þar sem einu verki hans hefur verið komið fyrir. Það er stór steinn, grettistak, sem svört keila hefur verið rekin ofan í og sprunga virðist kominn í steininn eins og hann sé að springa í tvennt. Mér fannst þó skemma áhrifin að sprungan stafaði greinilega ekki af svörtu keilunni heldur hafði verið framkölluð með því að bora í steininn með loftpressu. Á Listasafninu voru síðan allir salir fullir af kvikmyndum af framkvæmdum listamannsins. Flestar snúast þær um að fólki (oft fátæku fólki) hefur verið borgað fyrir að gera eitthvað einkennilegt eins og að láta lita hárið á sér hvítt, raða sér eftir húðlit, tattúvera strik á bakið á sér eða fróa sér og jafnvel hafa samfarir fyrir framan myndavélina. Listamaðurinn hefur víða vakið hneykslun fyrir slík uppátæki. Hann er sakaður um að notfæra sér neyð fólks og um að brjóta gegn einu helsta boði siðferðis: Þú skalt ekki nota aðra manneskju sem tæki. Fyrst var ég lengi að átta mig á hvað væri eiginlega um að vera á myndunum. Maður þurfti að lesa upplýsingaspjöldin vandlega til að botna í því. Á einu sést bara grafa grafa skurð. Á öðru stendur hvíthært fólk í biðröð eftir að fá teiknaðan kross í lófann og fá afhenta peningaseðla. Sýningin er ekki neitt sem grípur augað semsagt. Þarna er hugmyndin allt. Hvert myndband snýst um hugmynd. Þetta henykslaði mig reyndar ekki. Kannski var ég svo vel undirbúinn eftir frásagnir af þessu. Samt þótti mér þetta ágæt hugvekja. Mér fannst listamaðurinn vera að spyrja venjulegan íslenskan listunnanda: Hvað værir ÞÚ tilbúinn til að gera fyrir peninga? Hvaða upphæð þætti þér nógu freistandi til að láta lita hárið á þér hvítt? Hvað þyrfti mikið til að þú samþykktir að láta tattúvera strik á bakið á þér? Hvað þyrfti mikið til að fá þig til að fróa þér fyrir framan myndavél? Þannig að vangaveltur mannsins eru ágengar og áhugaverðar en myndirnar hans eru ekki mikið fyrir augað. Skrifað af mér sjálfum |
Vafraðu umEldra efni
|