Skúli Páls

Sub specie temporalis

21.01.2012 18:25

Það sem ég vildi sagt hafa

Þegar maður er helst farinn að blogga um af hverju maður sé að blogga - þá er eitthvað að. Að vísu þykir fullgild heimspeki að fjalla um hvað heimspeki sé. Nútímalistin snýst líka oft um spurningar um til hvers listin sé. En mér finnst þetta allt frekar einkennilegt. Ég hef semsagt smám saman verið draga úr fréttaflutningi hér án þess að lýsa því yfir að ég sé hættur og veit ekki alveg hvort ég er hættur eða ekki. Samt er allt gott að frétta. Í dag var til dæmis heimspekikaffihúsið eins og venjulega á laugardögum. Umræðuefnið var "af hverju gerum við það sem við gerum?" Ansi víðtæk spurning og ekki eins beinskeitt og við reynum að hafa spurningarnar. Umræðurnar urðu samt skemmtilegar og gagnlegar. Í morgun fór ég á fætur á undan öðrum, fór í sund og synti 1000 metra rösklega, án þess að stoppa og án þess að blása úr nös. Ég tek það sem merki um að ég sé í sæmilegu formi. Magnús ætlar að fara að vinna í kvöld við servera í Hörpu. Snorri er að skrifa ritgerð um rokksögu og eitthvað margt fleira. Rán er búin að grunna stóran striga eins og gömlu meistararnir gerðu. Nú er læri í ofninum og við verðum fimm í mat því hún Ólöf verður með okkur líka. 

Vafraðu um

Tenglar